Rugl og bull

24.02.2007 19:08:08 / audurrun

Endalokin??

Jæja fólk, ætla að prófa nýja síðu, var komin með leið á þessari síðu.
En við sjáum nú til með hvernig gengur með hana...

http://audurreykdal.blogspot.com/


» 0 hafa sagt sína skoðun

08.02.2007 14:24:29 / audurrun

Nóg í bili

Nennti ekki að segja ferðasöguna í gær, og nenni því nú ekki núna í vinnunni. Þannig að þið getið bara smjattað á þessu á meðan :haha:

Hver ER munurinn á kærustu og eiginkonu?           
          20 kg                     
                      
Hver ER munurinn á kærasta og eiginmanni?           
          45 mínútur...   

Hvað kallast það þegar að karlmaður klæmist við kvenmann?     
          Kynferðisleg áreitni

Hvað kallast það þegar að kvenmaður klæmist við karlmann?     
          99 kr. á mínútuna...     

Hvernig tekurðu eftir því að Konan þín ER dáin?         
          Kynlífið ER eins en uppvaskið safnast upp.

Hvernig tekurðu eftir því að maðurinn þinn ER dáinn?       
          Kynlífið ER eins en þú færð að hafa fjarstýringuna.       

Hvað þarf marga menn til þess að skipta um ljósaperu?       
          Enga, þeir sitja bara í myrkrinu og kvarta.

Hvað eiga menn og gólfefni sameiginlegt?           
          Ef þú leggur þá nógu vel fyrst þá geturðu þrammað á þeim allt þitt líf.

Af hverju ER svona erfitt fyrir konur að finna hlýja, rómantíska og tilfinninganæma menn?               
          Vegna þess að þeir eiga allir kærasta...           

Vitið afhverju konur feika fullnægingu??           
          Vegna þess að menn feika forleik.                   

Hvað fær menn til þess að hundelta konur sem þeir hafa ekki einu sinni í hyggju að giftast?                 
         Af sömu ástæðum og hundar elta bíla þó að þeir hafi ekki í hyggju að keyra þeim..                 
              
Af hverju fara menn frekar í sturtu heldur en bað?       
          Vegna þess að það ER ógeðslegt að pissa í bað....       
         
Veistu hver refsingin við tvíkvæni ER?           
          Tvær tengdamömmur....
    

Nema náttla hjá kallinum mínum, hann á svo svakalega góða tengdamömmu! Er það ekki litli kálfur?? :lol:
Annars segir plantan mín allt gott, og Atli getur staðfest það! Bið bara að heilsa ykkur í bili :D


» 7 hafa sagt sína skoðun

01.02.2007 15:59:55 / audurrun

I´m sorry for the WHAT?!?

Þá er bara road trip á morgun :haha:  ÞORRABLÓT!! Hef frétt af því að ýmsir leyndir hæfileika munu sýna sig, svo er bara spurningin hvort að það verði jafn góð stemming í salnum og í fyrra. Hver man ekki eftir tengdasonunum hennar Freydísar?? :lol: En samt eru strákarnir sko alls ekki hommar, þetta var alveg golden moment!

En ætlaði annars bara að segja ykkur skemmtilega vinnusögu, er búin að vera hérna grenjandi úr hlátri seinasta korterið.
Sú sem að situr við hliðina á mér var að svara tölvupósti, sem var á ensku. Hún var búin að skrifa allt saman og ætlaði svo að enda á því að segja I´m sorry for the inconvenience. Hún sló það víst eitthvað vitlaust inn, en notaði stafsetningaforritið og bað um uppástungur fyrir leiðréttingu. Hún ýtti bara á ok, og sá ekki að hún samþykkti vitlausa leiðréttingu, ég benti henni á það rétt áður en hún sendi póstinn. Annars hefði hún skrifað I´m sorry for the incontinence.
Við vissum nú ekki hvað þetta væri en vorum forvitnar hvað það þýddi (fyrst það er nú í boði í forritinu) líka til að sjá hver viðbrögðin gætu verið ef þetta hefði nú óvart senst. Og það er á hreinu að hér eftir mun þetta orð ekki koma nálægt svarsendingum okkar þar sem það gæti farið illa í móttakandann.
Eruði búin að googla orðið? Ég að sjálfsögðu sló því inn og vildi sjá hvað það þýðir. Incontinence þýðir sem sagt (samkvæmt encyclopedia á dictonary.com)
The involuntary loss of urine or faeces! :lol::lol:

Og þá dóum við alveg úr hlátri. Við sáum nú alveg við því að maðurinn í Hong Kong myndi bara senda litla karate kalla á okkur ;) En þetta gjörsamlega made my day, og er ég ennþá að þurrka tárin.

Annars biður plantan mín að heilsa, hefur það bara ljómandi gott. Og mun ég að sjálfsögðu vökva hana áður en ég legg af stað austur. Mín hugsar fram í tímann og allt. En later alligator, ætla að halda áfram að vinna.


» 5 hafa sagt sína skoðun

30.01.2007 14:57:37 / audurrun

Rústum þessum dönum!!

Ætla bara að koma með svona smá pepp!!

Anna og Inga ætla að vera stoltar þegar þær mæta í skólann á morgun og þá er líka eins gott að sýna okkar bestu hlið á móti baununum í kvöld. Er ennþá að reyna að ákveða hvar ég ætla að horfa á leikinn, langar soldið í stemmarann hjá moms. Annars segi ég bara Áfram Ísland!! (við gerum okkar, gerum okkar, gerum okkar, gerum okkar besta!)

Svo lifir plantan mín mjög góðu lífi, og ég vil ekki heyra einhverjar lygasögur um greyið úti í bæ!


» 1 hafa sagt sína skoðun

24.01.2007 12:55:24 / audurrun

Hamstur og öryrki

Ég ætla bara að byrja að segja, Ó MÆ GAD!! Hélt ég myndi ekki lifa það af að horfa á þennan handbolta. Var hálfdofin eftir tannlæknaferð þannig að ég rumskaði ekki við mér nema rétt fyrir leik. Mín ætlaði að mæta til mömmu og fara yfir um þar með fólkinu, en nei nei. Víðir var bara að lesa hérna í rólegheitum. En hann Atli snillingur hringdi í mig strax og fyrri hálfleikur var búinn og ég sagði honum bara að drífa sig hingað. Þannig að hann braut flest allar umferðarreglur sem til eru á landinu á leiðinni og við sátum hérna tvær taugahrúgur og kláruðum leikinn. Og þvílíkur leikur sem þetta líka var :haha: :haha: Át alla puttana í stresskasti... Svo talaði ég aðeins við Kötu daginn eftir leik (hún heldur sko með Króatíu) Okkar umræður þessa dagana snúast einmitt bara um handbolta, hún lifir sig töluvert meira inn í þetta en ég. En hún allavega fékk 3 sms frá Króatíu eftir leikinn og það spurðu allir sömu spurningarinnar: Hvað borguðu þið Frökkum mikið? :lol:

Annars er þetta bara búið að vera sjúkravika. Ég ákvað að drulla mér loksins til tannlæknis á mánudag (klöppum fyrir Auði) er jú búin að vera á leiðinni að láta laga brotnu tönnina mína í hmmm u.þ.b. 3 ár! 8| Eitthvað að sumum sko. Strákarnir sáu nú hvað ég át mikið af einhverju læknadópi um helgina, það var frekar skondið... En það var komið sýking í tönnina og eitthvað ullabjakk og svona. Það útskýrir bólguna. En ég var eins og hamstur öðru megin, það er aðeins að skána núna. Var bólgin alveg upp að auga, soldið skondið þegar ég brosti. Það lyftist bara öðru megin, þannig að ég var eins og eitthvað fífl. En ég er ekkert búin að fara í vinnuna síðan, er bara bólgin og aum. Þoli ekki svona, en Víðir er allavega búinn að vera halda mér félagsskap. Það var bara allt of snemmt af byrja aftur að vinna á mánudag. Það byrjaði bara að blæða aftur og honum illt og svona, þannig að hann hætti bara í hádeginu á mánudag og er búinn að vera heima síðan. Þá er sjúkrasagan þetta árið komið. Enda Víðir líka strax kominn með öryrkjakort :lol: :lol: Við hlógum nú mikið af þessu. Honum fannst þetta samt ekki fyndið. Hann er nebbla kominn með afsláttarkort, náði því með aðgerðinni. Og ég sagði að hann væri eins og eldri borgarar og öryrkjar, strax kominn með afsláttarkort :haha: Eða öryrkjakort, eins og ég hef ákveðið að kalla það.

Er þetta ekki bara nóg í bili? Það styttist alltaf í þorrablótið :D Sjibbý hvað mig hlakkar mikið til. Svo er bara meiri handbolti á næstunni. Allir að horfa og hvetja strákana.. Bið bara að heilsa ykkur í bili

P.S. Plantan mín ennþá í fullu fjöri og alltaf man ég að vökva hana ;)


» 5 hafa sagt sína skoðun

17.01.2007 12:37:27 / audurrun

Fólk er virkilega fífl

Sá þetta á netinu og þurfti bara að ræna því!Það er eitthvað virkilega mikið að sumu fólki.
Er nú aðallega að henda þessu inn fyrri mig, en veit að það eru einhverjir (vonandi allir) sammála mér með þetta. En getur fólk virkilega ekki hugsað aðeins. Vill það virkilega kalla margra ára þjáningar og vanlíðan yfir börnin sín?? Er á móti mannanafnanefnd, þar sem ég jú skil ekki hvernig hún starfar. Hún leyfir þessi nöfn en bannar svo mörg önnur sem meika sens. En mér finnst nú bara að þó svo að nefndin starfi eða ekki að þá eigi fólk að hafa vit á því að koma ekki upp með svona nöfn! :evil:

Stúlkna

nöfn

Drengja

nöfn

Eggrún Bogey Þjóðbjörg Þula Beinteinn Búri Náttmörður Neist
Oddfreyja Örbrún Stígheiður Stjarna Dufþakur Dreki Hlöðmundur Hrappur
Dúfa Snót Skarpheiður Skuld Hildiglúmur Bambi Hraunar Grani
Ljótunn Hlökk Kormlöð Þrá Fengur Fífill Ráðvarður Otur
Himinbjörg Hind Ægileif Hlökk Gottsveinn Galdur Reginbaldur Rómeó
Randalín Þrá Venus Vígdögg Grankell Safír Kópur Kristall
Baldey Blíða Hugljúf Ísmey Kaktus Ylur Þangbrandur Þjálfi
Bóthildur Brák Ormheiður Pollý Þorgautur Þyrnir Sigurlás Skefill
Loftveig Vísa Geirlöð Gytta Melkólmur Grani Þjóðbjörn Skuggi
Þúfa Þöll Niðbjörg Njóla Ljótur Ljósálfur


Annars er allt gott að frétta. Víðir fer í aðgerðina á morgun, og þá verður mín hjúkka. Handbolti og þorrablót framundan... En bið bara að heilsa ykkur í bili.
P.S. Plantan mín er ennþá lifandi og hefur það bara mjög gott :D


» 17 hafa sagt sína skoðun

15.01.2007 09:31:17 / audurrun

Ewil twin going away!!

Og það hefur verið staðfest... hið margumtalaða og alræmda þorrablót Bakkfirðinga verður haldið þann 3. febrúar næstkomandi. Maður er að sjálfsögðu búin að redda sér fríi bæði á föstudag og mánudag, þannig að þetta verður ljúf helgi :D

Var að horfa á handboltann í gær, eins og allir hinir. Við unnum leikinn jú og allt það. Þeir voru nú ekki að standa sig það vel, en það er nú ekki ástæðan fyrir því að ég minnist á leikinn. Eins og allir vita sem þekkja mig, þá finnst mér að það sé skylda að kunna þjóðsönginn ef þú ert í landsliði. Og þá skiptir engu máli hvort það sé í handbolta, fótbolta, skák eða stærðfræði... Mín var sko kát í gær. Þeir sungu eiginlega bara allir með :haha: :haha: Segi ekki annað en það var mikið. Það er nú ekki það erfitt að kunna að mæma með einu lagi. Annars heyrðist alveg vel í áhorfendum í gær þegar þeir sungu þjóðsönginn, þannig að ef við eigum að syngja hann, þá getur liðið það líka :!:

Svo er Víðir loksins að fara í aðgerðina. Ég skutla honum og sæki núna á fimmtudaginn. Hann á víst bara að vera frá vinnu í 2 daga. Læknirinn segir að hann geti alveg mætt á mánudaginn. Þá er það bara fínt. Þá fæ ég víst aðeins að vera í hjúkkuleik í nokkra daga. Spurning hvort ég þurfi nokkuð að redda mér búning?? Er það nokkuð?

Er annars bara farin að vinna eitthvað... endilega tjáið ykkur.

P.S. Plantan mín er ennþá lifandi og ég mundi eftir að vökva hana í gær. Þá er það bara vika tvö í okkar samlífi.


» 4 hafa sagt sína skoðun

09.01.2007 14:56:26 / audurrun

Smá viðbót

Endilega lesið fyrri færslu og commentin þar. Stuð á fólkinu loksins.
En annars er þetta bara smá viðbót... við systurnar duttum alveg í þetta. Þetta byrjar kannski asnalega en þetta er þvílíkt ávanabindandi. Endilega prófið þetta

http://www.freestuffhotdeals.com/hacker/1.html


» 2 hafa sagt sína skoðun

08.01.2007 11:11:16 / audurrun

Þessir blessuðu karlmenn

Þið hafið víst engann áhuga á að commenta eitthvað á bloggið mitt. Og það er nú loksins að lifna við. En ég bið ykkur samt endilega að kjósa í skoðanakönnunninni (vá hvað þetta voru mörg n) 8|
En getið þið útskýrt eitt fyrir mér. Við skötuhjúin fórum í Smáralind í gær á útsölur, ótrúlegt en satt þá fann ég föt, mín keypti sér meira að segja gallabuxur :!: Svo þurfti Víðir að fara í BYKO og kaupa einhver verkfæri, ok fínt mál. Við löbbuðum þarna inn og fórum í einhverja deild sem að hann hélt að dótið væri í. En nei... karlmaðurinn ákvað að í staðinn fyrir að spurja einhvern hvar hlutirnir væru að leita bara sjálfur. Við löbbuðum fram og til baka, alla gangana og leituðum og leituðum. Að lokum spurði hann um einhvern hlut og var bent að fara í aðra deild, og eftir að við fundum þá deild (honum datt auðvitað ekki í hug að spurja að því) fundum við dótið reyndar fljótlega. En þetta var bara fyrsti hluturinn, og það var sama sagan með næstu hluti, leitað og leitað. Og það endaði alltaf á því að hann bað um hjálp og fann hlutina þannig. Þannig að það endaði með því að við vorum miklu lengur en við þurftum! Hvað er að ykkur karlmönnunum?!? Eins og ég gæti spurt einhvern kall um einhverjar tangir sem heita einhverju asnalegu nafni og ég veit ekki hvernig líti út?? Sjénsinn! Ef þú veist ekki um hlutina og ert ekki bara á rápinu að skoða og svona í rólegheitum, FÁ AÐSTOÐ! Var alveg orðin nett pirruð á þessu, og hann fékk líka alveg skot frá mér um karlmenn og að spurja til vegar...
Annars komu mamma, Sæmi og Jói í afganga í gær. Býst við að fá gesti í kvöld líka í afganga, enda nóg til. Svona verðum við systurnar annars á árinu:

Stjörnuspá 2007

Fiskarnir
19.febrúar - 20 mars

Nú í upphafi árs uppgötvar þú nýjar hliðar á sjálfri þér. Lisrænir hæfileikar þínir eru margir og fá nú að njóta sín sem aldrei fyrr. Þú hefur áhuga á og mikinn hæfileika til að tjá þig á rituðu máli. Leyfðu þeirri hlið að blómstra og njóttu þín. Treystu innsæi þínu og ekki vera of sjálfsgagnrýnin og upptekin af smáatriðunum. Þú ert heldur næm fyrir skapsveiflum annara og átt það til að taka hlutina inná þig og hafa áhyggjur af einhverju sem þú berð enga ábyrgð á. Einblíndu á jákvæðu hliðarnar og njóttu ástarinnar í lífi þínu og mundu hvað lífið getur stundum verið skemmtilegt.

En er að spá í að halda áfram að vinna, gera eitthvað að viti. En endilega commentið og kjósið. Bye bye darlings.


» 9 hafa sagt sína skoðun

06.01.2007 21:25:20 / audurrun

Stórveislan búin

...og öll orkan með :| Við skötuhjúin alveg búin á því núna, liggjum bara uppi í sófa og höfum það kósý.

En það komu sem sagt 24 manns. Eða bara þetta venjulega í föðurfjölskyldunni. Þetta heppnaðist líka alveg svakalega vel. Vorum náttla búin að standa á haus að þrífa hágt og lágt á heimilinu. Svo ruddist ég inn á móður mína ástkæru og hún hjálpaði mér að baka.
Kláruðum svo að fínpússa allt í morgun. Jú og gerðum heitu réttina. En það var allt frábært, allir mjög ánægðir með veitingarnar og "nýju" íbúðina okkar ;) Fengum meira að segja nokkrar gjafir og svona. Fékk einmitt pottaplöntu, og þá er bara aðalspurningin hvað lengi hún nái að lifa hjá mér blessunin. (skellti inn skoðanakönnun um það)
Annars held ég nú að pabbi gamli hafi bara verið mjög ánægður með þetta. Fékk stóru kortabókina frá ömmu, afa og systkinum sínum. Á reyndar eftir að fá viðbrögðin frá honum í sambandi við baðinnréttinguna hans.

Og svo eru bara tons afgangar á staðnum. Endilega kíkið við og fáið ykkur. Fyrstur kemur fyrstur fær. En ætla annars bara að henda táslunum upp í sófa og slappa betur af. Later alligator...


» 0 hafa sagt sína skoðun

04.01.2007 17:05:17 / audurrun

Bara komin með nóg

Ég ætlaði nú ekkert að vera að tjá mig um neitt tengt Alcan. Fullt af mútum og svona, þannig að ég ætla bara að auðvelda hlutina.
Hérna er linkur og vá hvað ég er sammála honum. (Fyrir utan það að ég
er ekki búin að fá þetta blessaða dagatal)

http://dofri.blog.is/blog/dofri/entry/96945/#comments

Og ég spá í því að þetta verði það eina sem ég tala um þetta blessaða Alcan mál. Ég bara veit hver einn af þessum 3 köllum er, og þeir áttu ekki skilið að vera sagt upp.

Er annars búin að tappa nóg af í bili. Læt bara heyra í mér.


» 1 hafa sagt sína skoðun

02.01.2007 12:13:12 / audurrun

Nýtt ár gengið í garð

Þá er nýja árið byrjað.
Við kláruðum það gamla uppi í bústað, fjölskylduhelgarferð með dönsku pigerne. Fórum svo í bæinn og að venju kíkt til Lobbu. Vorum svo búin að bjóða fólki heim til okkar í partý. Ég var nú ekki besti gestgjafinn þar sem að ég er búin að vera með hausverk núna í 4 daga, og var bara edrú með hausverk um áramótin. En við höfðum það svo sem ágætt. Þetta var bara rólegt og þægilegt hjá okkur.

Annars er snúllan mín að fara í dag. Verð búin snemma í vinnunni þannig að ég fer og kveð hana aftur á eftir. Hún, Þórdís og Atli kíktu til okkar í gær. Við tókum nokkrar gúrkur. Svo þurfti Þórdís að fara og þá skelltum við okkur í Kúrí. Atli náði að klára leikinn með okkur. Og mundi líka að taka öll fötin sem hann á heima. Núna þarf ég bara að muna eftir treflinum hennar Herdísar.

En ætlaði nú bara aðeins að segja eitthvað. Ég heyri bara í ykkur seinna.


» 3 hafa sagt sína skoðun

28.12.2006 19:07:03 / audurrun

Bíð bara eftir snjónum

Þá eru aðal átdagarnir búnir, í bili allavegana. Er búin að hafa það alveg svakalega gott um jólin :)
Að venju var súpa á þorláksmessu, að þessu sinni var hún hjá Einsa og Díu. Þangað mættum við með alla pakkana og skiptum við hina. Svo hlustuðum við systurnar á Bubba á meðan við skreyttum tréð.
Matur hjá mömmu á aðfangadag, mmmm hún mundi eftir súpunni :haha: Fórum upp í garð eftir matinn og það hefur bara aldrei verið svona auðvelt að kveikja á kerti á aðfangadagskvöldi áður. Enginn vindur og bara æðislegt veður. Fórum svo aftur heim að opna pakkana ásamt aðalfólkinu. Og vil ég bara segja takk alveg æðislega fyrir okkur! Fengum alveg fullt af frábærum hlutum :P Svo var auðvitað kíkt í spilakvöld til Herdísar, held ég hafi bara aldrei hlegið jafn mikið áður. Bróðir minn fór alveg á kostum og þegar Ragnar fór að gretta sig... :lol::lol:
Kaffið á jóladag var að þessu sinni hjá Palla og Hrund. Það var gengið í kringum jólatréð og við fengum öll að syngja saman. Hangikjetið var borðað heima hjá pabbba um kvöldið. Það var nú nokkuð skondið ;) Maturinn var alveg frábær en sósan var aðeins í þykkara lagi.
Spilakvöldið það kvöld var heima hjá okkur. Fengum nú ekki mikinn fyrirvara, en náðum að gera allt hreint og fínt. Það var líka alveg svakastuð, þó svo að razzinn minn hafi ekki verið kláraður :| En það var allt af öllu, tópas og opal, bjór og razz og líka malibu í ananas. Svo voru það afgangar hjá Göggu í hádeginu, fengum meira segja með okkur heim til að gera tartalettur í kvöldmat. Annars var það bara rólegheitadagur, fótbolti og fínheit. Dottaði nú aðeins í sófanum. Anna og Atli komu svo um kvöldið og það var "aðeins" spilað Madagaskar. Enduðum á að klára leikinn kl 2-hálf3. Og mín að mæta í vinnuna daginn eftir 8|

En mér fannst við víst ekki borða alveg nóg um jólin því að ég ákvað að halda smá matarboð með svona léttum og góðum mat í gær. Systkinin og pabbi mættu í bjúgu og hvíta sósu. Mmmmm, daninn þurfti nú að fá svoleiðis í stutta stoppinu sínu.
En svo er það bara spilakvöld í kvöld. Mín er í fríi á morgun og það á að nýta hann í smá vesen áður en við brunum upp í bústað. Það verður nú eitthvað sgniðug helgi :haha:
En held þetta sé bara gott í bili. Endilega látið bara heyra í ykkur. Later, aligator.


» 2 hafa sagt sína skoðun

24.12.2006 12:48:23 / audurrun

...

Kæru landsmenn nær og fjær...

Auður og Víðir óska ykkur öllum gleðilegra jóla og farsæls nýs árs.
Með kærum þökkum fyrir allar góðar stundir á árinu sem er að líða, með von um að þær verði enn fleiri og betri á nýju ári.

Vonandi hafið þið það sem allra best um jólin í faðmi fjölskyldunnar.
(Þar sem það komust jú allir á leiðarenda ;) )


» 2 hafa sagt sína skoðun

18.12.2006 18:08:06 / audurrun

I sow and I own a cow!!

Jæja Anna mín, nú skal ég blogga fyrir þig, og já líka fyrir Brásu. Þið eruð víst þær einu sem að lesa þetta þannig að ég skal reyna að segja ykkur eitthvað skemmtilegt. Er ennþá í vinnunni reyndar, en fyrst ég er á launum ákvað ég nú að nýta tímann vel :lol:

Annars er snúllan mín loksins komin heim um jólin... :haha::haha: sjibbý sjibbý. Enda stökk ég líka á hana og knústi í klessu þegar ég sá hana. Ég er svo góð systir.
Við byrjuðum þetta bara með látum, fórum út að borða, með Gungu, Þórdísi og Helgu, á red chili og svo í drykkjuleiki heima hjá mér með Víði, Birki, Árna Leó og mása, og misstum okkur svo á Papaballi, þar sem við hittum Atla og Herdísi. Fengum öll óskalög sem við báðum um. Tveggja ára bið loksins lokið og við systurnar fengum að heyra I would walk 500 miles. Alveg brilliant. Við Anna, Víðir og Atli kláruðum ballið eftir brottfall fólks um nóttina. Herdís kom og skutlaði okkur heim.
En við prúða og stillta fjölskylda... ;) vorum alveg að fara að lenda í slagsmálum. Hef bara aldrei verið á balli með jafn mikið af pirrandi og erfiðu fólki :evil: Við áttum bara okkar pláss og gólfinu og fólk verður bara að skilja það. Erum stærri, sterkari og frekari og þá færðu ekki að troðast framfyrir eða á plássið okkar! Missti nú reyndar af mjög miklu, Anna náði að bjarga mér frá einhverjum perra, helmingur kvenfólksins á staðnum þurfti að káfa á rassinum á Víði, einhver datt á rassinn og margt fleira.

Og samkvæmt pöntun var farið á stælinn í þynnkumat, sumir þurftu það mikið á honum að halda að það var labbað á staðinn. Svona aðeins að fá sér frískt loft :P Anna var alveg raddlaus eftir balleríið, það náttla heyrist aldrei á mér að ég hafi sungið eina einustu nótu og þá tók snúllan mín þetta bara tvöfalt, greyið konan í sjoppunni heyrði ekki í henni og hún var öskrandi :D haha, bara fyndið að heyra Önnu hása öskrandi.
Svo skelltum við systurnar okkur í bíó í gær. Fórum á The Holiday og núna á ég líka kú í bakgarðinum mínum.

En er að spá í að kalla þetta gott, jafnvel að fara heim og halda áfram að skreyta... Svo er taco á morgun, manstu Bilkil??


» 4 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 9